<$BlogRSDURL$>

26.3.07

Með eldunaræði 

Komin með splunkufína gaseldavél og bakaraofn sem virkar, búin að elda lasagna, grænmetisböku og baka gulrótarköku. Næst á listanum er heimalöguð pizza, ofnbakaður fiskur og kjötbollur í brúnni sósu. En ætli ég þurfi ekki eithvða að saxa á matarafganaga helgarinnar fyrst?
Farin í bónus að kaupa tannkrem og mjólk.

Sí jú leiter gæs :)

|

14.3.07

Það kviknaði í húsinu mínu! 

Fyrst:
Á föstudags morguninn vaknaði ég upp við símhringinu frá Tona, skilaboðin voru að litlu snúllarnir þeirra Söruh hefðu komið í heiminn deginum áður 10 vikum fyriri tímann, einn lítill og annar minni.
Til hamingju englarnir mínir með nýjustu og minstu vini mína.

Svo:
Á föstudagskvöldinu stóð ég í slökkvistörfum, það kveiknaði í íbúðinni minni!
Hetjan ég slekk galvösk eldinn og hringi í Steinþór, ekki slökkviliðið. Smart múv?
Eníveis þá er ég enn að bíða eftir matsmanni, en hei ég fæ nýja eldavél.
Það varð enginn stórskaði, ekkert af dótinu mínu skemmdist, ekki einusinni forljóta úrsérgengna eldhúsinnréttingin, það hefði verðið heldurbetur næs að fá nýja, dem.
Síðustu dagar hafa farið í að skrúbba veggi and stöff, ákvað að það væri kanski kominn tími á að losa sig við eithvað af þessum óþarfa sem hleðst upp hjá manni svo ég fór í gegnum hverja einustu örðu sem ég á og hennti öllusem þjónar engumtilgangi öðrum en að vera fyrir og taka pláss, svo er líka orðið svo mikið pláss í fataskápnum mínum, tækifæri til að kaupa meira meira meira!!!

|

7.3.07

Ú je 

Með terpentínu braggð í munninum veit ég að lífið er gott, ú je.
Búin að grunna fjóra fyrir hádegi, það kalla ég framkvæmdir og árangur,
+ ég hef tíma til rúmlega fimm til að halda áfram.

Í dag er gaman að vera Ósk


|

1.3.07

Voða málefnaleg 

ætlaði að skrifa rosa blogg og vera háfleyg og málefnaleg en svo æ bara, svo ég só ekki tímanum gjörsamlega þá er ég að velta þessu fyrir mér:

Ef ég byggi í hjólhýsi á laugarveginum, þyrfti ég að borga í stöðumæli eða fengi ég svona íbúastöðumælafrípassa?


|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?