<$BlogRSDURL$>

28.6.06

Satans 

Nú er kaffi maskínan bimms

|

Argh!!! 

Áversta tíma hef ég klárað internetið, og það eru 10 40 mínútna spólur eftir, en ég á nýjan ipod og get spilað Music Quiz fram á morgun.

|

27.6.06

Hann er kominn, hann er minn 

Fallegi fallegi fallegi ipodinn minn, hann á við kinbrenglunar vandamál að stíða og vill láta kalla sig Cecilia.
Nú munum við Blisið og Cecilia þeysa saman á milli staða, þyrfti nú eiginlega að spreya Blisið silfurlitað svo allt sé í stíl og líma eppla límmó á Blisið!!!


|

24.6.06

Baron Karl von Drais 

Ef hann væri ekki dauður myndi ég sýna homum á mér brjóstin!

Já hann fann upp hjólið...

|

21.6.06

Það er þá það... 



...

|

Hringnum lokað 


|

13.6.06

Og svo allt i einu 

finnst mér ég hafa lítil brjóst og berst við löngunina um að fara inn á klósett til þess að setja salernis pappír í brjóstahaldarann minn.

|

Ekki lengur hrein mey 

Húffah...
Þá er það búið

Svo er bara að bíða í nokkradaga og þá verður hann kominn til mín...

ebay.com er hættulegur staður fyrir eyðslukó eins og mig

|

12.6.06

Það er engin spenna í lífinu mínu 

ef ég horfi á byrjunina á enn einni hrikalegri Steven Segal myndinni, eða enn einni hrillilega talsettri sænskri barnamyndinni byggðri á sögu astrid lindgren...

... svona verður hriðjuverkafólk til

|

Heyrði það i utvarpinu 

Eitt núll fyrir mér!!!

|

9.6.06

Þá er það ákveðið 

Með einum fjólubláum og skál fylltum miðum með nöfnum ólíkra þjóða.

Áfram Mexico

|

Skulda Skulda Blogg!! 

Ég skrapp útí heim og aftur heim um daginn. Það var gaman, varð ástfangin...
BERLIN er coola! Hmmm...

1 Ég át jarðaber
2 Ég át kirsuber
3 Ég át melónu og hráskinku í morgunmat
4 Ég drakk bjór í garðinum - endalust mikið af allskyns görðum mjög huggulegt og lausir hundar útum allt sjúklega hamingjusamir. ég væri líka sjúklega hamingjusöm ef ég byggi í BERLIN er coola!
5 Ég fór á markaðinn - keypti 8mm cameru á 6 júrur og Rússneskt kennskuefni á filmu um; Seinni heimstyrjöldina, Kommúnisma í bókmenntum og miðstöðvarkindingu.
6 Ég skoðaði í second hand búðir - notuð stígvél eru dýrari í Berlin en hér heima, keypti kjól og fann litlar sætar búðir þar sem litlar sætar stelpur sátu að sauma föt eftir sjálfar sig - keypi mjögsvo huggulegan bleikan bol.
7 Ég fór á loðna homabarinn Roses - hann var yfirþyrmandi bleikur og loðinn og blikkandi og eins ósmekklegur og það gerist, fannst hann æði - var reyndar búin að ákveða að slaufa því að fara þangað af því að ég nennti ekki en seinasta daginn minn í Berlin ákvað ég að gera eitt túrista stönt og fór og fann veggdótið, fann 80 metra langan part sem kallaður er Gallery Wall og þá var ég eiginlega bara komin á Roses.
8 Ég upplifði list... Gallery Wall er myndskreyttur af allskins listafólki, list er ekki ekki eithvað sem þarf að leita að í Berlin, hún er fyrir augunum á þér allstaðar, bara blindir kæmust hjáþví að upplifa sjónlistir í Berlin.
9 Ég heyrði lifandi tónlist - eins og sjónlistirnar þá var lifandi tónlist allstaðar, huggulegastir fannst mér mennirnir sem tókusig til og fóru að spila á harmonikku og hristur í lestinni - annars fór ég líka á tónleika
10 Ég át ekki Bratwurst pulsu ógeð - ég gugnaði, þetta er bara svo sjúklega óhuggulegt eithvað, grámygluleg niðurskorin pulsa sem mynnir hellst á líffæri sem ég hef ekki, fljótandí í tómatsósu með lauk. Neibb ég er gunga... en ég át Zebrahest og fekk eitt það besta sússí sem ég hef nokkurntíman smakkað... NAMM NAMM OG SLEF

Ég tók ekki eina einustu ljósmynd... Skamm Ósk En ég tók margar margar DV spólur að lifandi myndum

Já ég er að gleyma því besta, ég kypti mér bassa, svartan og kvítan lítur út eins og bassi, og magnara. Núna ætla ég að stofna hljómsveitina Green Corner Sofa og spila rokk og ról.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?