<$BlogRSDURL$>

8.5.05

Komnar heim 

Það var dásamlegt að vera túristi í viku...

En vélin lenti á réttum tíma, sem betur fer. Að vísu var ekki búið að hleypa farþegunum úr vélinni þegar að púff klukkan sló tólf og við sátum í graskers hrúgu og mýs hlaupandi um allt.

Ég þurfti svo að útskýra á hinum ýmsustu tungu málum hvernig þetta fólk hafði óvart álpast inn í ævintýrirð okkar. Við rétt náðum að forða okkur á hlaupum frá því að vera gríttar af æstum múgnum.

Sarah er enn að reyna að ná restinni af graskers klessunni sem einhver æstur Saga Class farþeginn náði að smyrja í hana áður en við náðum að stökkva yfir girðinguna.

Keyrðum svo beint á barinn jei.

En núna er afmælið mitt búið, eins gott því Jónína á afmæli á morgun, heppin.

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?